25.09.2008 13:20:11 / Rakel

Bowchicabowwow!

Vá! Var loksins að fá netið aftur eftir 3 vikna bið. Ég segi bara EKKI fara í viðskipti við Tal. Löng saga, nenni nú ekki að fara að tuða um það hér.

Æðislegt að vera komin aftur í skautahöllina, var farin að sakna þess að tuða í krökkunum um að ganga vel um og neita þeim um ókeypis nammi :)

Hef nú ekki verið að gera mikið af mér þessa dagana enda skítnóg að gera í skólanum. Það er loksins farið að sjá fyrir endann á þessu... þetta er allt að koma. Og hvað svo? hugsar maður... Beint í Háskólann? Meira nám næstu 5 árin. Fjúff... hljómar ekki vel. En ef maður tæki sér pásu og færi að vinna þá gæti hún orðið jafn löng og hin pásan.... það hljómar ennþá verr. Vil helst klára þetta fyrir þrítugt!!

En mig langar líka svo mikið að gefa skít í þetta í svona hálft til eitt ár og stinga af út í heim... What to do???? Getur einhver sagt mér það?

En svona að öðru! ... Tékkið á þessu : http://www.youtube.com/watch?v=HjWtRYaxmWM

Mig langar í svona vin! Ef þetta er ekki sannur vinur þá veit ég ekki hvað!! Gæti auðveldlega étið þig, en velur frekar að knúsa þig :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 16:14:17 / Rakel

Smá færsla

Ætla nú ekkert að hafa þetta langt, sit hér uppí tómum skóla að læra því netið tók uppá því að bila heima hjá mér.

En hún INGA á afmæli í dag :) 

http://cs-004.123.is/7df9d035-8b19-40dc-b84e-2b33e4b7e648.jpg

Alveg hreint yndisleg mynd af henni :)  ... hahahahahaha....  Good times.

En við ætlum að halda hátíðlega uppá daginn fyrir ellismellinn okkar, heima hjá mér annað kvöld.... Það verður auðvitað BAARA stuð :)

Skjáumst.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 11:43:25 / Rakel

Well open up your mind, and see like me...

Mmmm.... þessi er nú meira krúttið ... 

http://www.youtube.com/watch?v=EkHTsc9PU2A

Svona eigum við öll að vera... ligeglad, hamingjusöm og laus við hégóma og þörf fyrir óþarfa lúxus.

Reyndar held ég að það sé svaka lúxus að vera frjáls og áhyggjulaus einhversstaðar úti í heimi :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 16:57:38 / Rakel

Go cry about it, why don´t you?!

http://www.besportier.com/archives/gap-sweater-vest-fall-2007-john-mayer-1.JPG

Þetta er vinur minn, hann John Mayer. Ég var nú ekki að fíla strákgreyið fyrst en hann er bara sífellt að koma mér á óvart með fleiri og fleiri góðum lögum! Alveg hreint magnaður þessi drengur :) Mörg lögin hans eru fáránlega góð... goosebumps út í gegn.

Þetta lag er t.d. að tröllríða hátölurunum hér heima núna (þegar ég á að vera að læra fyrir próf) : http://www.youtube.com/watch?v=rwMfS594qfE

Það er líka eitthvað fáránlega flott (og dare I say.... sexy) við röddina hans :)

Þetta er amk lag dagsins! og verður það líklega næstu daga :) 



John Mayer Lyrics
Slow Dancing in a Burning Room Lyrics

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 17:30:28 / Rakel

Bring it on!

Úje!

Við Rannveig fórum á Mótor(svif)dreka eða hvað sem það kallast, á föstudaginn! Rannveig var svo köld að finna bara eitthvað símanúmer á netinu, hringdi í formann félagsins og spurði hvort einhver nennti að fljúga með okkur :)  Það gekk svona líka asskoti vel og það endaði með því að þeir Egill og Einar hentu okkur í sinnhvorn drekann svo við fengum að fljúga á sama tíma.
Þetta var auðvitað BARA gaman. Svo buðu þeir okkur bara uppá bjór og spjall eftir á... svona líka almennilegir :) Rannveig er búin að skella sínum myndum inná Facebook en ég er svo löt að ég á eftir að setja mínar inn.

Jæja, eftir ævintýrið tókum við á móti fólki heim í "partý" ...  réttara sagt Rock Band fíflagang :) þarna voru Örri, Einsi, Einar Haukur, Krissi, ég, Rannveig og Kata. Ég missti mig á mic-num og Rannveig var óð á gítarnum, nýbúin að segja að hún hataði svona dót :) 

Á sunnudaginn kíktum við svo í hellaferð, ég, Einsi, Trausti, Billi, Axel og Imma.
Skoðuðum Rósahelli, Rótarhelli og Tanngarðshelli. Þetta var fyrsta hellaferðin mín svo ég bjóst við að fríka af innilokunarkennd eða einhverskonar ímyndunarveiki (nýbúin að horfa á The Descent!)
Eeeen, ég stóð mig bara helvíti vel, ég meina, á tímabili þurfti maður að skríða á maganum í gegnum þröööööngar holur, í kolniðamyrkri, og í lokin var ég komin fremst, "leiðandi hópinn"... óumbeðin! :) Hugrökk :)

Þegar við vorum í Rótarhelli kom kafli þar sem mikið var um þröng göng og maður þurfti að skríða á fjórum og klöngrast í gegnum leiðindakafla, svo allir nema Einsi og Billi ákváðu að fara ekki lengra. Ég gat nú ekki verið þekkt fyrir kellingaskap svo ég skreið eins og eitthvað fífl á eftir þeim... en málið var, að ég er ekki eins fljót og þessir tveir hraustu karlmenn svo bilið á milli okkar fór alltaf að aukast meira og meira, en ég þrjóska fíflið held samt áfram á eftir þeim, of seint að fara að snúa við, komin þetta langt! 

Áður en ég veit af eru fíflin horfin, og ég hætt að heyra í þeim. Ég hugsa að þeir hljóti að vera að fokka í mér, og held áfram að elta. Eeen mér til mikillar SKELFINGAR kemst ég að því, að ég er eeeeeein eftir í göngunum! Þeir komnir aaaalltof langt á undan mér til að ég geti náð þeim, það langt að þeir heyra ekki einu sinni í mér þegar ég kalla, og restin af liðinu einhversstaðar langt fyrir aftan okkur því þau vildu ekki halda áfram.

Það eina sem ég hafði til huggunar var lítið vasaljós og .... já... that´s it! Alein lítil kelling í myrkrinu. Ég var líka eeeeldsnögg tilbaka, því ég vissi ekkert hvað væri fyrir aftan mig... þarna var ímyndunaraflið farið að herja á :) Og ekki meikaði ég að stoppa og lýsa aftur fyrir mig (til að róa mig niður), því þá gæti eitthvað komið upp að mér að framanverðu. Eins og ég segi, hausinn og einveran farin að fokka í mér :)


Ég komst að minnsta kosti heil á húfi til baka, bölvandi strákunum í sand og ösku, og þegar þeir létu loks sjá sig kýldi ég Einsa greyið í magann :) 


En svona, to sum it up, þá var þetta fínasta helgi :)

P.s. Kristófer bróðir á afmæli í dag... ef þú lest þetta : til hammó með ammó sæti ! :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 14:46:01 / Rakel

It´s gonna be legendary.

ooo hvað ég elska How I met your mother.

Ég var skömmuð fyrir að vera lélegur bloggari. Málið er bara að ég hef voða lítið að segja frá. Er búin að djamma EINU SINNI í allt sumar... gerði ekkert um versló, fór í eina útilegu sem endaði með flótta aftur í bæinn sökum veðurs... og hef svo bara skifst á að læra, vinna og fara í ræktina. Ekki skrítið að ég hafi fátt að segja :)

Eeeeen... Við Rannveig erum búnar að finna okkur eitthvað að gera. Ætlum á svifdreka (með mótor, sem getur tekið farþega) í kvöld eða um helgina, svo erum við að reyna að finna góða jeppaferð til að troða okkur með í, hellaskoðun (á eigin vegum helst), kayak... bara name it. Það er svo heppilegt að Rannveig er með sambönd útum aaaallt og fær góða díla :)

Ætla líka að reyna að slá eigið met í gönguferðum upp Esjuna í sumar. Bæti þolið með hverri ferð sjáiði til... og ekki veitir af :)

Ég get svarið það ég er að drepa sjálfa mig úr leiðindum með þessu bloggi.... ætla að láta þetta gott heita í bili :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 16:07:12 / Rakel

Æsispennandi!

Ég var að skoða gamlar myndir frá því við heimsóttum Lindu í Horsens í fyrra og rakst þá á þetta merkilega video af einni mest spennandi keppni (á milli mín og Huldu) sem sögur fara af!

Hraðinn og æsingurinn er í hámarki á þessarri stuttu klippu, og ótrúlegt að menn skuli bara yfir höfuð hafa jafnað sig eftir að hafa orðið vitni af þvílíku fjöri!

Hér eru svo herlegheitin :

http://www.youtube.com/watch?v=MdlAFSh6SUw

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 12:04:02 / Rakel

Viva España!

Jæja, þá er maður búinn að jafna sig eftir Tenerife og getur farið að skella einhverju hér inn. Fyrir þá sem ekki vita þá fórum við með Huldu og Begga og gistum á Parque Santiago 3.

Hér koma nokkrir punktar úr ferðinni (Varúð - langt!) :

* 5 kakkalakkar eltir eins og hundar og MYRTIR. Einum var reyndar bara hent út á dyr, fékk að halda lífi greyið. Þeim tókst þó alltaf að bregða manni jafn mikið í hvert skipti, læddust inn í myrkrinu að nóttu til og skriðu svo upp við lappirnar á manni svo maður var hættur að þora að standa í einhverju næturbrölti.... maður gat bara beðið með að pissa fram á morgun!

* Monkey Park!! Hér var ég, sögumaður, í essinu sínu. Fékk að gefa alls konar öpum að borða, litlum, stórum, krúttlegum og stríðnum. Þeir voru meira að segja picky á matinn sem maður bauð þeim uppá....völdu vandlega úr :) Einn var svo stríðinn að hann sneri uppá hendina á mér, hljóp svo í burtu og montaði sig við hina apana... ég fyrirgef honum það alveg :) Fékk svo einn lítinn „herra Níels apa“ til að skríða á hausnum og öxlinni minni... var næstum búin að stela honum hann var svo sætur.

* Ég fann flyer frá Skypark, sem býður uppá teygjustökk úr 60 metra hæð, kúluna (sem er skotið hálfa leið upp í geim) og fleiri svona adrenalínpumpandi tæki, og hélt ég yrði ekki eldri af spennu, ætlaði sko að fara í allt sem boðið var uppá.... en komst svo að því að garðinum hafi verið lokað :( Farinn á hausinn. Mikil vonbrigði. En kanski fyrir bestu, kom allavega heil heim :)

* Við Einsi horfðum á flest alla EM leikina á meðan við vorum úti. Króatar, fullorðnir menn, grétu eftir dramatískan leik. Þá kemst ég að því að ég er of aumingjagóð til að horfa á fótbolta. Vorkenni svo rosalega liðinu sem tapar :) Algjör bjáni 

* SVAKALEGT að fylgjast með úrslitaleiknum úti!!! Allt að verða vitlaust... Allir í spænsku treyjunum merktum Torres... allt frá pínulitlum börnum og upp í gamlingja, eins og þessi HÉR http://www.youtube.com/watch?v=20wNBXTz2Rg sem steig trylltan dans í lok leiksins. Allir úti á götu dansandi, öskrandi, syngjandi, veifandi fánum... allir hangandi útúr bílunum með fánana, liggjandi á bílflautunum. Þetta var bara gaman.

* Ferðalangarnir fjórir : Einn var tanaðastur, annar var að missa sig í prakkarastrikum, sá þriðji sást varla án þess að hafa áfengi um hönd og sá fjórði hélt að kaffi væri góður kostur í stað vatns.

* Krabbatennis! – ný og betrumbætt útgáfa af borðtennis.

* Leigðum bíl dauðans... Jeep Wrangler... ómæ... þvílík mistök! Ekki séns að keyra með toppinn af því vindurinn var alltof mikill þegar við vorum á ferð (btw þá hlógu kallarnir á bílaleigunni að okkur þegar við báðum þá að kenna okkur að taka hann af), ef við höfðum toppinn á, þá þurfti farþeginn frammí að HALDA honum svo hann mundi ekki fjúka af.

* Leigðum Buggy og keyrðum uppá eldfjall. Stoppuðum í bakaleiðinni á stórfurðulegum „veitingastað“ inni í skógi, leit samt meira út eins og mótel úr bíómynd þar sem lík eru falin í hverju horni, eigandinn er geðveikur og ferðamennirnir komast aldrei lifandi heim. Kallinn benti okkur stelpunum á að við þyrftum að labba lengra inn í skóginn til að fara á klósettið, langt labb og þegar þangað var komið var allt lokað og læst með hengilás. Voða furðulegt allt saman.

* Lalla-la-lala-lalaaa !  Þennan litla lagstúf munum við vera með á heilanum næstu árin, þökk sé leiktækinu hinum megin við götuna, alveg við hótelsvalirnar okkar.... heyrðist á nokkurra mínútna fresti , 24/7. Ótrúlegt hvað við þoldum þetta vel, létum þetta ekkert fara í taugarnar á okkur. Maður var nú samt farinn að raula þetta endrum og eins án þess að gera sér grein fyrir því sjálfur.

* Lítill strákur fannst meðvitundarlaus í sundlaug í Aqualand. Við fylgdumst öll í losti með því þar sem dælt var uppúr honum vatni, hjartahnoð reynt í örugglega meira en 20 mínútur og mamman æpir „por favor, por favor!“ .... Þetta var það hræðilegasta sem maður hefur nokkurntímann horft uppá :( Þegar flestir voru búnir að missa alla von um að stráknum yrði bjargað tókst að koma hjartanu aftur af stað. Munum samt aldrei vita hvort drengurinn hafi vaknað aftur eða verði heill eftir þetta. Það er kanski bara best að vita sem minnst.

Jæja! Ég held það sé komið nóg í bili, örugglega allir hættir að lesa þetta var orðið svo langt :)

Ég kveð í bili.

 

P.s. Ég skelli inn myndum við tækifæri.


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 17:15:42 / Rakel

Makes you feel like you´re gone crazy, but you´re not.

Er ég bara alveg ein um að fá hroll upp og niður allt bakið þegar ég hlusta á þetta lag?? 

http://youtube.com/watch?v=z6tQbxdLhnk&feature=related

Mér finnst þetta BY FAR laaaaangbesta Júróvisjón lag sem ég hef heyrt. Og ekki fæ ég illt í augun af að horfa á söngvarann heldur sko (þrátt fyrir ógeðslegt outfit í keppninni sjálfri :P )  En það virðist bara enginn vera sammála mér!
Er búin að hlusta á þetta aaaansi oft. Hálf kjánalegt samt að syngja með því þar sem þetta er sungið á hebresku (held ég) og ég veit EKKERT hvað hann er að syngja. Sem betur fer heyrir enginn í mér :)

En svo við snúum okkur nú að allt öðru máli... þeir sem hafa unnið við þjónustustörf þekkja það nú að vera kallaðir ýmsum "nöfnum"... fröken, fyrirgefðu, halló, heyrðu, afsakið... og allt það. Um daginn var ég kölluð "KIS KIS" !!!! .... KIS KIS SEGI ÉG! ... er ég eitthvað kisuleg? :) Það fyndnasta við þetta var að það var stelpa sem kallaði svona á mig :) Og þetta er nú frekar fínn veitingastaður... þetta bjargaði alveg deginum :D 


Hér er svo loksins mynd af snúllunni hennar Ingu (og Helga) :



Er maður sætur eða er maður sætur???  Verður skírð 15. júní... ég held hún muni heita ........ Gríma!

Nei nú fer ég með gamanmál (vona að ég móðgi engar Grímur þarna úti!)

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 13:58:03 / Rakel

Mr. Dylan, I want my money back!

Jább, þannig er nú það. Fór á Dylan tónleikana á mánudaginn, þraukaði í 1 og hálfan tíma og gekk svo út, svekkt, sár og illt í buddunni (hans Einsa :þ), greyið borgaði 18 þús kall fyrir okkur tvö. Meira að segja Jón Ívar, Bob Dylan fan númer eitt sást geyspa og horfa í kringum sig af leiðindum. Ekki gott!

Fór í prufu á veitingastaðnum Tilveran í gær. Sem væri svo sem ekki frásögu færandi nema vegna þess að mér tókst að gera mig að aaaaalgjöru fífli :) Missti 9 opnar GLER pepsiflöskur í gólfið fyrir framan 15 manna hóp af ungum gæjum :P Þeir voru samt svo yndislegir að gera bara grín af þessu og segja að það hafi komið annar jarðskjálfti... ekki mér að kenna :)  Hugsaði með mér fyrstu 3 tímana "ég kem aldrei hingað aftur, ég kem aldrei hingað aftur", en svo gekk þetta betur því lengra sem leið á kvöldið og ég tók að mér fleiri vaktir um helgina.

Ég prufaði Gravity boots í gær. Er með upphýfingarstöng heima, þá festir maður draslið á lappirnar, festir það svo við upphýfingarstöngina og hangir svo þannig í þessu á hvolfi til þess að gera kviðæfingar ofl.
Þetta gekk nú ekki betur en svo að þegar ég ætlaði að losa mig tókst mér bara að losa aðra löppina svo ég hékk á hvolfi, Á ANNARRI LÖPPINNI, með hina dinglandi út í loftið. Hló mig máttlausa og grátbað Einar að losa mig en honum fannst þetta svo mega fyndið að hann stóð bara þarna vælandi úr hlátri og tók mig upp á video! :) Kvikindið! :) Og til að toppa þetta sýndi hann bossinum sínum þetta í vinnunni... það verður langt í að ég heimsæki þá strákana aftur í vinnuna :)


Aaaaanyway.... ekki nema 18 dagar í Tenerife!!! :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 15:10:32 / Rakel

Hah... Bjartsýn

Jæja... nú þykist ég ætla að fara að láta í mér heyra aftur. Skulum nú bara sjá til hversu lengi það endist!

Það er nú ansi langt síðan ég skellti einhverju hér inn síðast. Það er svo margt að frétta að það er ekki séns að koma því öllu fyrir í einu bloggi.

En þetta er svona það helsta sem er í gangi þessa dagana :

  • * Inga eignaðist litla stelpusnúllu þann 18. maí, skelli inn mynd af henni þegar ég er búin að fá að sjá gullmolann.

* Vala frænka eignaðist strák um daginn, sá fékk nafnið Jakob Máni Júlíusson.

* Linda er komin heim frá Danmörku og verður hér hjá okkur amk fram í febrúar.

* Hulda bara komin með kall og farin að húsmæðrast :)

* Skellt mér í river rafting á laugardaginn með Lindu og Rannveigu. Skelli inn myndum frá því seinna. Helvíti gaman bara, en soldið mikið kalt.

  • * Tenerife með Einsa, Huldu og Begga í júní!!

* Fallhlífarstökk á dagskrá í júlí eða ágúst með Rannveigu og kanski fleirum (Ef einhver þorir) !

* Mútta og Siggi giftu sig óvænt í fermingunni hennar Ástrósar. Kom öllum mjög á óvart!

* Tvær manneskjur komnar útúr skápnum,  mikið sjokk, en bara flott mál! :)


 Æ ég man ekki meira í bili :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 13:55:40 / Rakel

Hætt að blogga

Hef ekki tíma í þetta :)

» 2 hafa sagt sína skoðun